Skemmtilegt æfingamót

Í kvöld var haldið upphitunarmót fyrir Íslandsmótið næstu helgi og var þátttaka góð. Í opnum flokki kepptu 11 spilarar og sigraði Þorri á samtals 45 skotum (tvo hringi). Besti hringur hans var 21 skot. Annar varð hinn ungi og bráðefnilegi Gunnlaugur á 48 skotum en hans besti hringur var 23 skot. Þess má geta að Gulli varð Íslandsmeistari í barnaflokki fyrir nokkrum árum og kemur nú sterkur inn. Þriðji var Jón Símon á 50 skotum.

Í kvennaflokki voru þrír keppendur en þar sigraði Guðbjörg Ragnars á samtals 59 skotum (27+32), önnur varð Kristrún á 62 skotum (32+30) og þriðja varð Halldóra á 64 skotum (33+31). Besta hringinn átti Guðbjörg á 27 skotum. Nánari úrslit í opna flokknum:

  1. Þorri 21+24 = 45
  2. Gunnlaugur 23+25 = 48
  3. Jón Símon 24+26 = 50
  4. Nonni 24+27 = 51
  5. Addi 24+28 = 52 (4 tvistar)
  6. Haukur 28+24 = 52 (3 tvistar)
  7. Sigurjón 30+23 = 53 (6 tvistar)
  8. Birgir 26+27 = 53 (5 tvistar)
  9. Garðar 26+27 = 53 (2 tvistar)
  10. Davíð 28+26 = 54
  11. Ágúst 31+33 = 64

Auk þess spiluðu nokkrir byrjendur einn hring og þar voru skráðir Darren á 28 skotum, Birgir Jóakimsson á 32 skotum og Jessica á 36 skotum. Nokkrir til viðbótar spiluðu en skiluðu ekki inn skorkortum.

Ásamót í Gufunesi (AceRace)

Í dag var haldið skemmtilegt ásamót í Gufunesi þar sem takmarkið var að fá sem flestar holur í höggi. Allir spila með sömu tegund af diski en þetta árið varð fyrir valinu pútter frá Discraft. Frábært veður og góð þátttaka gerði þetta að skemmtilegu folfmóti sem verður haldið aftur að ári. 12 ásar náðust á mótinu og konurnar gerðu sér lítið fyrir og náðu 3 þeirra. Sigurvegari varð Haukur Árnason með tvo ása en það þurfti bráðabana á milli hans og Jóns Halldórs Arnarssonar til að skera út um úrslitin. Haukur er þriðji frá vinstri í aftari röð á myndinni.

Skorkort og vallarkort


Nú eru komin skorkort og teikningar af 5 völlum inn á síðuna okkar sem hægt er að sækja undir flokknum FOLFVELLIR. Þannig er hægt að prenta það út og mæta með. Frítt er að spila á öllum þessum völlum og þeir alltaf opnir.

Scott Rief í heimsókn

Síðustu daga hefur bandaríski folfarinn Scott Rief verið í heimsókn hér á landi en hann millilenti hér í tvo daga á leið sinni frá Finnlandi þar sem hann keppti á Evrópumótinu í frisbígolfi. Scott er einn sterkasti spilarinn sem hefur heimsótt okkur en hann hefur unnið sér inn rúma eina milljón króna í verðlaunapening á mótum. Scott sýndi okkur ýmis handbrögð upp í Gufunesi og eitthvað af því var tekið upp. Það efni verður sett á síðuna fljótlega.

Klambratúnið slær í gegn

Nú í sumar var opnaður nýr glæsilegur völlur á Klambratúni og við hvetjum alla til þess að mæta þangað og spila. Fyrsti teigur er við bílastæðið (vestanmegin) en þar er kort af vellinum. Á skiltinu er póstkassi með skorkortum. Verið líka óhrædd við að spyrja þá sem greinilega eru vanir.

Komið endilega og prófið – það kostar ekkert.