Kvennamótaröð ÍFS 2026

Í sumar höldum við áfram með kvennamótaröðina okkar, en mótin eru ætluð bæði vönum keppendum sem og óvönum. Boðið verður upp á fjóra mismunandi getuflokka og eru konur á öllum aldri velkomnar að taka þátt.

Mótin í sumar verða eftirfarandi mánudaga:                                                                            

Kvennamót 1 –  11. maí – Laugardalur
Kvennamót 2 – 1. júní – Vífilsstaðir
Kvennamót 3 – 6. júlí – Guðmundarlundur
Kvennamót 4 – 27. júlí – Fossvogur
Kvennamót 5 – 24. ágúst – Grafarholt

  • Eftir mót 24. ágúst verður verðlaunaafhending fyrir mótaröðina og léttar veitingar.

Mæting kl. 19:00 í maí,  júní og júlí.

Mæting kl. 18:00 í Grafarholt 24.ágúst.

Boðið verður upp á fjóra flokka:

Meistaraflokkur kvenna (FPO) sem er ætlaður fyrir þær konur sem eru vanar að keppa, reynslumiklar með góða færni. Hvítir teigar og stundum einn og einn lengri teigur.

Almennur flokkur kvenna 1 (Fa1) Fyrir þær sem eru vanar að spila frisbígolf og vilja prófa sig áfram í keppni eða telja sig frekar eiga að keppa í FA1 heldur en FPO. Hvítir teigar.

Almennur flokkur kvenna 2 (FA2) sem er fyrir konur með enga eða litla reynslu og langar að prófa að  stíga sín fyrstu skref í keppni og keppa á hvítum teigum eða blöndu af rauðum og hvítum teigum.

Almennur flokkur kvenna 3 (FA3) sem er fyrir ungmenni 12 – 15 ára sem vilja prófa að keppa með jafningjum með fylgd og aðstoð mótsstjóra við að læra reglur og keppa á blöndu af hvítum og rauðum teigum.

Dagskrá á keppnisdögum:

Á hverju móti spilum við tvo hringi á vellinum (nema á 18 holu velli spilum við einn hring). Hittumst hjá bílastæði eða fyrsta teig á auglýstum tíma, tökum hópmynd og fáum úthlutað brautum til að byrja á. Þær sem eru í FA2 fá aðstoð við að læra reglur og annað sem tengist keppni frá þeim sem eru reyndari og með þeim í hóp að spila hringinn. Hefð hefur myndast í kvennamótum að vera með leik á keppnisdegi. Leikurinn er kynntur áður en mótið byrjar.

Verðlaun:

Verðlaun verða veitt fyrir 1. sæti í hverjum flokki á öllum mótunum. Verðlaun verða einnig veitt fyrir sigurvegara í leik mótsins (mismunandi leikir í mótunum og mismunandi verðlaun). Þrjú bestu mótin gilda til að vinna mótaröðina og fá bikar. Ef tvær eða fleiri konur eru jafnar að stigum þá gilda fjögur bestu mótin, svo fimm bestu mótin. Ef ennþá jafnar þá er bráðabani ákveðinn í samráði við viðkomandi keppendur.

Verð:

Mótsgjald er 1000 kr fyrir hvert mót eða 4000 kr fyrir mótaröðina. Við erum í samstarfi við FGR og því verður mótsgjald á kvennamótaröðina innifalið í félagsaðild FGR 2026.

Greiðsluupplýsingar: Banki: 0513 – 14 – 503326. Kennitala 4507050630 (Skýring ,,kvenna“ og senda kvittun á motanefnd@folf.is eða koma upplýsingum/pening til mótsstjóra fyrir mót).