Af hverju frisbígolfvöll í þitt sveitarfélag?

_MG_4188Með aukinni vitund um mikilvægi lýðheilsu hefur orðið vakning á fjölbreyttri og ódýrri afþreyingu og hollri hreyfingu. Þannig hefur orðið mikil aukning síðustu ár á þeim sem hafa uppgvötað frisbígolf og eru farnir að stunda það af kappi. Þessu hafa mörg sveitarfélög tekið eftir og fáum við fjölda fyrirspurna þar sem verið er að velta því upp af hverju ætti að setja upp frisbígolfvöll í bæjarfélaginu. Nú eru komnir 30 vellir hér á landi og ekki ólíklegt að þeim fjölgi enn frekar á næstu 2-3 árum.

Ástæðurnar eru fjölmargar. Fyrir utan tilbreytingu og fjölbreytni í afþreyingu þá er frisbígolfið sérlega hentugt fyrir alla aldurshópa og auðvelt fyrir hvern sem er að ná tökum á því.

  • Ódýrt og einfalt er að setja upp heilan völl. Engar landslagsbreytingar.
  • Kostar ekkert að spila á völlunum.
  • Búnaður er mjög ódýr, í byrjun nægir einn 2.000 króna frisbídiskur.
  • Hentar allt frá börnum til ömmu og afa.
  • Hægt að spila í flestum veðrum, allt árið.
  • Holl og góð hreyfing.
  • Hægt að stunda einn eða fara með vinahópnum.
  • Færir nýtt líf á svæði þar sem er t.d. skógrækt, útivistarsvæði, almenningsgarðar ofl.
  • Viðhald á völlunum er mjög lítið.

Það er því engin spurning að frisbígolfvöllur er frábær viðbót við þá afþreyingu sem fyrir er. Hafið endilega samband við okkur á folf@folf.is til að fá ráðleggingar eða svör við spurningum.

 

Miðnæturmánaðarmótið 2014

10443255_10203552965058251_857322822565516161_oÞað er orðinn árlegur viðburður að nota birtuna í júní og halda miðnæturmót. Eitt slíkt var haldið 19. júní sl. og mættu tæplega 40 keppendur þrátt fyrir rigningu. Keppt var í fjórum flokkum; A, B, C og kvennaflokki og heppnaðist mótið mjög vel.

Niðurstöður og skor má sjá hér.

Folf í Hrísey

hriseyfolfNú er völlurinn í Hrísey tilbúinn til spilunar og eins og sjá má á kortinu hér að ofan er þetta 9 brauta völlur með tveimur teigum á hverri braut. Við hvetjum auðvitað alla folfara til þess að koma við í Hrísey og spila þennan nýjasta völl okkar sem mun vera mjög skemmtilegur með lengstu braut upp á 94 metra. Byrjunarteigur er við gamla skólann.

Góð sumarbyrjun

ulliNú er sumarveðrið skollið á og allir folfvellir orðnir fullir af áhugasömum spilurum. Margir orðnir spenntir eftir langan vetur. Nýju vellirnir eru allir í vinnslu, sumir komnir í gagnið (Hrísey og Mosfellsbær) en aðrir í undirbúningi. Við reiknum með því að þeir verði allir klárir í júlí. Völlurinn á Akranesi verður einnig stækkaður upp í 9 brautir en Garðalundur er frábær staður fyrir folf.

Völlurinn í Gufunesi verður tekinn í gegn í sumar. Bæði verður vellinum breytt mikið en eins verður öllum gömlu körfunum skipt út fyrir nýjar. Settir verða þrír teigar á hverja braut (rauðir-hvítir-bláir) og lagað verður undirlagið á þeim öllum. Settar verða fleiri merkingar þannig að nýjir spilarar eigi betur með að rata um völlinn. Starfsmenn Gufunesbæjar ætla að sjá um sláttinn í sumar enda veitir ekki af.

Mosfellsbæjarvöllurinn tilbúinn

IMG_6700

Nú er völlurinn i Mosfellsbæ tilbúinn og öllum opinn til notkunar. Völlurinn er í svokölluðum Ævintýragarði sem er svæði sem búið er að hanna sem framtíðar útivistar- og skemmtisvæði. Auðvelt er að komast á hann með því að leggja bílnum við gömlu sundlaugina/íþróttahúsið og fylgja göngustíg á völlinn. Tveir teigar eru á vellinum, rauðir sem eru auðveldari og tilvaldir fyrir byrjendur og hvítir sem eru erfiðari og hentugir fyrir vanari spilara. Hægt er að sækja vallarkort hér á síðunni undir flokknum “vellir”.

10 nýir vellir

islandskort2014

Nú liggur fyrir staðfest að það koma amk. 10 nýir vellir í sumar og í lok sumars verða þeir því orðnir 17 talsins. Hér er kort með staðsetningu valla til þess að menn geti skipulagt sumarfríin sín betur með fjölskyldunni í sumar!

Mismunandi er hvenær vellirnir verða spilahæfir og margt sem getur haft þar áhrif á. Okkar von er að þeir verði flestir tilbúnir um miðjan júlí.

Þetta eru nýju vellirnir: (dagsetningar eru ágiskanir)

Reykjavík – Fossvogur (seinnipart júlí)
Reykjavík – Laugardalur(seinnipart júlí)
Reykjavík – Breiðholt (seinnipart júlí)
Mosfellsbær – Ævintýragarðurinn (tibúinn)
Hafnarfjörður (snemma í júní)
Hrísey (snemma í júní)
Akureyri – Hamarkotstún (miðjan júlí)
Húsavík (miðjan júlí)
Flúðir (fyrri part júní)
Apavatn (júní)

Næsta mánaðarmót

Maí mánaðarmótið verður haldið fimmtudaginn 22. maí á Gufunesvellinum og hefst mótið kl. 19. Keppt verður í öllum flokkum og skráning hefst á vefnum föstudaginn 16. maí. Við hvetjum alla til þess að taka þátt.

Gott folfsumar framundan

Nú er að skýrast betur hvort og hvar nýjir vellir koma upp í sumar. Fyrir liggur ákvörðun um 8 velli sem bætast við þá 7 sem fyrir eru. Einnig verða gerðar endurbætur á völlunum á Klambratúni og Gufunesi.

Nýju vellirnir eru:

Í Reykjavík; Fossvogur, Laugardalur og Breiðholt, Mosfellsbær, Hafnarfjörður, við Apavatn, á Flúðum og í Hrísey. Á Klambratúni og Gufunesi verða settir þrír teigar við hverja körfu auk þess sem öllum körfum í Gufunesi verður skipt út fyrir nýjar. Stefnt er að því að öllum framkvæmdum ljúki í júlí. Það verður því gaman fyrir alla folfara í sumar.

Fyrsta mánaðarmótið

Fimmtudaginn 17. apríl verður fyrsta mánaðarmót sumarsins haldið og er mæting kl. 13. Keppt verður eftir hönnun nýs vallar í Fossvogsdalnum en settar verða upp ferðakörfur þar sem völlurinn verður ekki settur formlega upp fyrr en í sumar. Þægilegasta leiðin er að koma niður Árland og beygja þar til hægri á bílastæði sem þar eru.

Árgjald 2014

_MG_4903

Nú þegar fyrsta mót sumarsins er að skella á er rétt að minna á að félagsaðild ÍFS gefur afslátt af mótum auk annara fríinda. Árgjaldið er aðeins 2.000 krónur og fyrir eldri félaga er nóg að millifæri á reikning félagsins. Nýjir félagar þurfa að ská sig inn á forsíðu folf.is

Millifærsluupplýsingarnar eru:

Íslenska frisbígolfsambandið kt. 450705-0630, reikningur: 513-14-503326