
Undanfarin ár hafa fulltrúar ÍFS unnið að því með nágrönnum okkar á Grænlandi að byggja upp og kynna frisbígolf þar í landi enda trúum við því að folfið geti orðið jafn vinsælt þar og hér á Íslandi. Þessi vinna okkur hefur skilað því að nú eru komnir 4 vellir en við höfum verið með áhersluna á höfuðstaðinn Nuuk og komið beint að því verkefni. Með styrk frá Norræna höfuðborgarsjóðnum höfum við tvisvar sent fulltrúa til Grænlands til að skoða aðstæður og undirbúa með heimamönnum.
Okkar reynsla er m.a. sú að mikilvægt sé að vanda vel til verka og setja t.d. heilsársteiga strax til að mæta þeim erfiðu veðuraðstæðum sem þessi lönd búa við. Þannig er möguleiki að spila fleiri mánuði ársins, jafnvel allan veturinn án þess að bleyta, hálka eða snjór hindri notkun.
Í september 2025 fóru Birgir Ómarsson og Ólafur Haraldsson til Nuuk til fundar við embættismenn í Sermersooq sýslu en tilgangur ferðarinnar var að undirbúa finna heppilega staðsetninu á fyrsta vellinum í Nuuk og undirbúa jarðveginn fyrir sportið. Skemmtilegt útivistasvæði í grennd við Háskólann varð fyrir valinu og í þeirri ferð var hannaður 9 brauta völlur sem settur var upp núna september 2026 og eru íbúar Nuuk þegar byrjaðir að nota völlinn og spila. Verið er að klára smíði á teigum og er stefnt að því að þeir verði settir upp fyrir veturinn.
Grænlendingar eru mikil útivistarþjóð og hreyfa sig mjög mikið. Við teljum því líklegt að frisbígolfið passi vel inn í þeirra daglegu frístund og vonum auðvitað að það slái í gegn eins og hér. Það er mikill áhugi á að senda hóp til Grænlands fljótlega til að hitta og spila með heimafólki og vonandi getur það orðið innan skamms. Við hvetjum okkar fólk sem er á ferðinni til Nuuk að taka diskana með og prófa þennan skemmtilega völl í alveg ótrúlegu mögnuðu landslagi. Við vorum að setja völlinn inn á UDisc.