
Eins og margir vita þá er hægt að fá frisbígolfdiska sem glóa í myrkri en þeir eru frábærir ef þið viljið spila á þessum tíma ársins. Gott er að hafa með vasaljós til að lýsa öðru hvoru á diskana en þá glóa þeir í töluverðan tíma og auðvelt að finna þá. Við hvetjum alla til að prófa.
Ekki er verra að hengja einnig vasaljós í körfurnar.