Minningarmót um Ólaf Inga

Góður félagi okkar í frisbígolfinu, Ólafur Ingi Heiðarsson, varð bráðkvaddur þann 13. september síðastliðinn, aðeins 45 ára að aldri. Ólafur hefur verið öflugur þátttakendi í okkar samfélagi í mörg ár og hefur fylgt syni sínum ötullega á flestum mótum sem haldin hafa verið auk þess að vera mjög góður spilari sjálfur. Óli skilur eftir sig stórt skarð í frisbígolfsamfélaginu og honum til heiðurs verður sérstakt minningarmót haldið sunnudaginn 4. október þar sem allur ágóði mótssins renna til fjölskyldu Ólafs.
Mótið er öllum opið en keppt verður í tveggja manna liðum með Texas fyrirkomulagi þ.e. betri diskur gildir.