
Síðasta sunnudag var haldið fyrsta Silfurmót Íslandsbikars ÍFS en Silfurmótin eru stök frisbígolfmót sem eru ætluð þeim sem eru að spila sín fyrstu skref í keppnisfolfi. Mótið var haldið á tveimur völlum, Guðmundarlundi og Vífilsstöðum en spilaður var einn hringur á hvorum velli.
Góð þátttaka var á mótinu en 46 keppendur voru skráðir til leiks í sex flokkum.
Silfurmótin halda áfram og hvert mót er sjálfstætt þó að þau séu hluti af mótaröð þannig að öllum er velkomið að taka þátt og hvetjum við folfara til að slá til. Næsta Silfurmót verður haldið á Akureyri en sjá má dagskrána hér: https://www.folf.is/keppnir/silfurmotarodin/