Fyrsti 18 brauta völlurinn á Austurlandi.

Undanfarin þrjú ár hafa öflugir aðilar á Egilsstöðum unnið að því að koma upp 18 brauta velli í Selskógi sem er vinsælt útivistarsvæði við Egilsstaði.
Uppbygging á vellinum hefur staðið yfir síðan 2024 og er framkvæmdum að ljúka haustið 2026. Völlurinn er 18 holu keppnisvöllur í hæsta gæðaflokki og á honum eru m.a. tvær körfur á nokkrum brautum og tveir til þrír teigar. Venjulegur hringur er PAR 58 með 1773 m kastlengd. Selskógur er aðal útivistarsvæði Egilsstaðabúa og biðjum við spilara að bera virðingu fyrir öðrum gestum í skóginum.

Við óskum Austfirðingum til hamingju með glæsilegan völl og hvetjum auðvitað alla til að grípa diskana og spila hring.