105 folfvellir á Íslandi – 10 átján brauta!

Frisbígolfvöllum fjölgar alltaf á hverju ári en þeir eru orðnir 105 um allt land. Segja má að hægt sé að finna folfvöll í nánast öllum sveitarfélögum landsins og á þeim fáu stöðum sem ekki er völlur eru viðræður í gangi.

10 átján brauta völlurinn var opnaður í sumar en þá var völlurinn á Hvolsvelli stækkaður og settir heilsársteigar á allar brautir. Þessir vellir eru Gufunesvöllur, Grafarholtsvöllur, Reykjanesbær, Selfoss, Úlfljótsvatn, Ljósafoss, Hvolsvöllur, Egilsstaðir, Hamrar og Háskólavöllurinn á Akureyri.

Við hvetjum ykkur öll sem þið ætlið að ferðast um landið í sumar að taka diskana með og prófa allla þá velli sem verða á leið ykkar í sumarfríinu.