Sumarið er tíminn á svo sannarlega við frisbígolfið þó að vetrarspilamennska hafi færst í aukanna. Framundan er skemmtilegur tími með langa daga og hita í lofti. Frisbígolffélögin eru mörg komin með sumardagskrá og inn á viðburðadagatali folf.is/vidburdir má nú finna 99 viðburði sem skipulögð eru fram í október.
Við hvetjum ykkur öll til að taka þátt í þessu en boðið er upp á fjölda flokka á hverju folfmóti, þú finnur örugglega flokk við þitt hæfi.
