Nú er góður tími til að spila frisbígolf enda allir vellir opnir allt árið. Margir vellir eru komnir með heilsársteiga sem gerir ánægjuna enn betri að spila og við sjáum að þeir vellir eru töluvert vinsælli en aðrir. Hlýr fatnaður og góð húfa er það eina sem þarf og svo bara hugafarið að drífa sig af stað – og taktu vinina með!
Nú þegar sumarið er á enda og fjárhagsáætlanir sveitarfélaga fyrir næsta ár eru komnir í fulla vinnu þykir okkur rétt að hvetja þau til að huga að frisbígolfinu, einu best heppnaðu leið undanfarinna ára til að fá fólk á öllum aldri til að hreyfa sig. Lýðheilsa í sinni tærustu mynd með hreyfingu og samskiptum.
Á marga folfvelli vantar að smíða heilsársteiga, teiga sem þola þetta mikla álag sem oft er á völlunum vegna mikillar notkunar og hlífa þannig viðkvæmum jarðvegi auk þess að gera notkun og upplifun spilaranna margfalt betri – allan ársins hring. Nýliðið blautt sumar er gott dæmi um hversu miklu þetta munar enda sjáum við gríðarlega mikinn mun á ástandi vallanna hvað þetta varða.
Við hvetjum því þá folfara sem eru með vanbúinn folfvöll í sínu nágrenni til að senda inn formlegt erindi til sveitarfélagsins og óska eftir endurbótum og um leið hvetjum við sveitarstjórnarfólk til að taka jákvætt í þannig erindi og setja fjármagn í smíði heilsársteiga og auka þannig stórlega notkun á völlunum. Þetta eru litlar upphæðir en skila sér marfalt til baka í aukinni hreyfingu íbúa og betri líðan.
Við hjá ÍFS getum alltaf aðstoðað og gefið góð ráð ef sent er fyrirspurn á folf@folf.is
Um helgina var haldið Íslandsmótið í frisbígolfi og fór mótið fram á völlunum í Gufunesi og Grafarholti. Spilaðir voru þrír hringir og lék veðrið við keppendur sem ekki hefur verið algengt á frisbígolfmótum í sumar. Íslandsmótið er í raun þrjú mót í einu, Meistaramót þar sem keppt er í opnum flokki og kvennaflokki, Ungmennamót þar sem allir 18 ára og yngri geta keppt og að lokum í stórmeistaraflokki sem er fyrir 40 ára og eldri. Hörkukeppni var í flestum flokkum en eftirfarandi aðilar urðu Íslandsmeistarar og óskum við þeim innilega til hamingju.
Íslandsmótið okkar verður haldið dagana 9.-11. ágúst nk. og verður keppt bæði á Grafarholts- og Gufunesvelli. Mótið er nú haldið í byrjun ágúst og eru skráðir tæplega 80 keppendur í sex flokkum og verða því sex Íslandsmeistarar krýndir sunnudaginn 11. ágúst. Áhorfendur eru velkomnir en bæði er hægt að fylgja keppnishópum eða fylgjast með á stökum brautum og hvetjum við alla til að sjá bestu frisbígolfara landsins etja kappi á þessum tveimur erfiðu völlum.
Á Íslandi eru langflestir frisbígolfvellir í heiminum miðað við íbúafjölda en núna er völlur á hverja 3.800 íbúa. Til samanburðar þá eru Finnar í öðru sæti með einn völl á hverja 5.200 íbúa og Bandaríkin með einn völl á hverja 32.000 íbúa. Þannig geta folfarar líklega fundið völl nálægt sínum heimahögum og margir hafa úr nokkrum að velja. Við hvetjum líka þá sem eru á ferð um landið að stoppa við og spila þá velli sem eru í leiðinni enda oft kærkomið að teygja úr sér og taka hring.
Hér er uppfært Íslandskort sem gefur ágæta yfirsýn yfir vellina hér á landi en nánari upplýsingar og vallarkort eru á þessari síðu undir flipanum “Folfvellir”.
Nú er búið að setja upp glæsilegan 18 brauta frisbígolfvöll á svæði Landsvirkjunar í Soginu og liggur völlurinn á milli Ljósafossvirkunar og Írafossvirkjunar þar sem áður var golfvöllur. Mikið er lagt í vandaða teiga og umgjörð vallarins og góð blanda af löngum og stuttum brautum. Á svæðinu var líka settur upp skemmtilegur 9 brauta púttvöllur sem gaman er að spreyta sig á óháð getu.
Nú er komið á þessum skemmtilega viðburði sem haldinn er fyrir yngri keppendur í okkar frábæru íþrótt. Öll eru auðvitað velkomin óháð getu eða reynslu í frisbígolfi.
Boðið er upp á 10 keppnisflokka en þeir eru: 15, 12, 10, 8, 6 ára og yngri í bæði stelpu og strákaflokkum. Nánari upplýsingar verða birtar hér á síðunni þegar nær dregur. Takið daginn frá.
Nú er búið að kynna mótadagskrá sumarsins og það verður fjölbreytt framboð fyrir keppendur á þessu ári. Áfram verður boðið upp á Gull- og Silfurmót Íslandsbikarsins með þeirri breytingu að Gullmótum verður fækkað úr 5 í 3 en á móti verða önnur stórmót í boði. Frisbígolffélögin eru að kynna mótskrá sumarsins og verður þeim bætt inn í viðburðardagatalið eftir sem þau berast.
Maí Silfurmót 1 – 11.-12.maí – FFH Reykjavík Open – 18.-20. maí – FGR Silfurmót 2 – 25.-26. maí – Njarðvík FFS Gullmót 1 – Akureyri Open – 31. maí – 2. júní – FGR
Júní Kvennamótaröð mót 1 – 7. júní Úlli ljóti 1 – 8. júní – Úlfljótsvatn Silfurmót 3 – 15. júní – Selfoss – FGÁ Kvennamótaröð mót 2 – 16. júní Gullmót 2 – Sólstöðumót FGR – 21.-23. júní – FGR Norðurlandsmótið – 27.-30. júní – FGA Akureyri
Júlí Íslandsmót barna – 6. júlí – ÍFS á Grafarholtsvelli Kvennamótaröð mót 3 – 7. júlí Gullmót 3 – Frisbígolfbúðin/Smartfix – 12.-14. júlí – FGB á Grafarholtsvelli Silfurmót 4 – 20.-21. júlí – Akureyri – FGA Álfabikarinn – 27. júlí Kvennamótaröð mót 4 – 29. júlí
Ágúst Íslandsmótið í Texas – 8. ágúst – ÍFS í Gufunesi Íslandsmótið í Frisbígolfi – 9.-11. ágúst – ÍFS Gufunes/Grafarholt Kvennamótaröð mót 5 – 15. ágúst Silfurmót 5 – 24.-25. ágúst – FGR
September Ljósanæturmót – FFS – 7. september Reykjanesbær Þorramót FGR – 13.-14. september Reykjavík Árshátíð FGR – 14. september Reykjavík Úlli ljóti 2 – 21. september