Íslenska landsliðið í frisbígolfi

Dagana 8.-12. september fór fram Heimsmeistaramót landsliða í frisbígolfi (WTDGC) en mótið var haldið í þetta sinn í Vilnius í Litháen. Ísland sendi í fyrsta sinn eigið landslið og taldi hópurinn alls 15 manns sem er auðvitað frábært.
Við tefldum fram tveimur liðum á mótinu, annars vegar í Opnum flokki (OPEN) og hins vegar í Stórmeistaraflokki (Masters) sem er fyrir 40 ára og eldri.

Keppt var í holukeppni (match play), með svipuðu fyrirkomulagi og margir þekkja úr Ryder Cup í boltagolfinu. Hver hola skiptir því máli og keppt er fyrir liðið. Ísland stóð sig með prýði og endaði í 18. sæti af 28 liðum í Opnum flokki og í 16. sæti af 18 liðum í Stórmeistaraflokki (Masters).

Mótið verður haldið aftur eftir tvö ár og Ísland mun senda aftur lið á það mót og jafnvel enn stærri hóp.