
Íslandsmótið í frisbígolfi var haldið nýlega en spilaðir voru fjórir hringir til skiptis í Gufunesi og Grafarholti. Sex Íslandsmeistarar voru krýndir í lok móts:
Kvennaflokkur (FPO) María Eldey Kristínardóttir
Opinn meistaraflokkur (MPO) Blær Örn Ásgeirsson
Kvennaflokkur 40 ára og eldri (FP40) Katerina Zbytovska
Stórmeistaraflokkur 40 ára og eldri (MP40) Pétur Gunnarsson
Stórmeistaraflokkur 50 ára og eldri (MP50) Jóhannes Bjarki Sigurðsson
Ungmennaflokkur 18 ára og yngri (MJ18) Birtir Ingason
Fyrr í sumar var haldið Íslandsmeistaramót barna og voru verðlaun fyrir 18 ára flokkinn einnig afhent í lok þessa móts. Á myndina vantar Jóhannes Bjarka Sigurðsson.
Við óskum sigurvegurum og öllum sem tóku þátt til hamingju með árangur sinn í keppninni.