
Íslandsmót barna í frisbígolfi fer fram laugardaginn 4. júlí 2026 á Grafarholtsvelli (Þorláksgeisla 51) en keppt verður í 6 aldursflokkum, bæði stelpu og stráka. Við leggjum áherslu á að mótið sé skemmtileg upplifun fyrir keppendur og hvetjum öll börn, 18 ára og yngri til að taka þátt.
Í upphafi móts verður farið yfir helstu reglur og því ekki krafist að krakkar hafi keppnisreynslu. Foreldri eða forráðamaður þarf að fylgja börnum 12 ára og yngri. Elstu þrír flokkarnir spila á stóra vellinum en hinir flokkarnir spila Græningjann. Engin vallarmörk og kvaðir verða í gildi á mótinu. Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki en einnig eru dregnir aukavinningar úr skorkortum. Púttkeppni verður í gangi allan daginn og pylsur, drykkir og Candyflos fyrir keppendur.
Boðið er upp á sex aldursflokka, bæði stelpu og stráka: 18, 15, 12, 10, 8 og 6 ára og yngri (Miðað er við fæðingarár)
DAGSKRÁ ÍSLANDSMÓTSINS LAUGARDAGINN 4. JÚLÍ 2026
Kl. 10.00 6 ára og yngri (f. 2020) – Græningi, 1 hringur (6 valdar brautir)
Kl. 10.30 8 ára og yngri (f. 2018) – Græningi, 1 hringur (12 brautir)
Kl. 11.00 10 ára og yngri (f. 2016) – Græningi, 2 hringir (24 brautir)
Kl. 13.00 12 ára og yngri (f. 2014) – Stóri völlurinn, 18 brautir (rauðir teigar)
Kl. 13.30 15 ára og yngri (f. 2011) – Stóri völlur, 18 brautir (stelpur rauðir/strákar hvítir)
Kl. 14.00 18 ára og yngri (f. 2008) – Stóri völlur, 18 brautir (stelpur hvítir/strákar bláir)
Keppnisgjald er aðeins 500 kr. á barn. Skráning er á folf@folf.is og á staðnum.
Mótið er samvinnuverkefni ÍFS og FGR