21apr12:0017:00Annarípáskum mótFGR
Event Details
Annarípáskum mótið er PDGA-vottað C-tier mót með öllu sem því fylgir (rating, reglur). Mótið fer fram í Grafarholti þann 21. apríl (2. í páskum) kl. 12:00.
Event Details
Annarípáskum mótið er PDGA-vottað C-tier mót með öllu sem því fylgir (rating, reglur). Mótið fer fram í Grafarholti þann 21. apríl (2. í páskum) kl. 12:00.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum: MPO, FPO, MP40, FP40, MP50, FP50, MA1, FA1, MA2, FA2, MA3 og FA3.
• Bláir teigar: MPO, FPO, MP40, MP50, MA1, MA2
• Hvítir teigar: FP40, FP50, FA1, FA2, MA3, FA3
Athugið: Flokkur með 3 eða færri skráða leikmenn sólarhring fyrir mót verður sameinaður sambærilegum flokki. Það verður þó alltaf að minnsta kosti einn Mxx- og einn Fxx-flokkur af hvorum teig.
Verðlaun veitt í hverjum flokk.
Þátttökugjald er 1.500 kr. og skal greitt inn á reikning 0334-26-019998 kt: 2201804769 eða AUR 8253808. Allur ágóði af móti fer í að greiða niður kostnað keppenda á Heimsmeistaramóti Heldri Viðvaninga (Amateur Masters Disc Golf World Championship) sem fer fram í Minneapolis 1. til 5. júlí.
Skráningarfrestur er til kl: 10:30 21. apríl.
Meldingu skal klára fyrir kl 11:30 á keppnisdegi og hún fer fram í gegnum UDisc eða með því að senda SMS í síma 825-3808 með nafni og einhverjum skemmtilegum texta.
more
Time
21/04/2025 12:00 - 17:00(GMT+00:00)