
Íslandsmótið í Texas fer fram 7. ágúst 2025 í Grafarholti.
Leikmannafundur fer fram um kvöldið 7. ágúst 2025.
Íslandsmótið fer fram dagana 8. – 10. ágúst 2025.
Íslandsmótið verður áfram mót þeirra bestu og ber að hafa það í huga þegar keppandi skráir sig í mótið. Boðið er upp á 8 keppnisflokka og verða því átta Íslandsmeistarar krýndir eftir mótið. Mótið er PDGA vottað B tier mót. Kvennaflokkar spila blandaða hvíta- og bláa teiga en aðrir flokkar spila bláa teiga.
Mótshaldari er Íslenska frisbígolfsambandið (ÍFS)
Sjálfboðaliðar:
motanefnd@folf.is tekur við tölvupósti með glöðu geði með fyrirspurnum varðandi að gerast sjálfboðaliði í undirbúning fyrir eða á Íslandsmótinu. Nóg af verkefnum bæði fyrir mót og á mótinu sjálfu.
Íslandsmótið stendur yfir í þrjá daga 8.-10.ágúst.
Föstudagur – Gufunes
Laugardagur – Grafarholt
Sunnudagur – Grafarholt
Allir keppendur spila þrjá daga. Einn hring á dag, föstudag til sunnudag.
Nafnbótin „Íslandsmeistari” fær eingöngu sá sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:Vera íslenskur ríkisborgari eða með búsetuskilyrði á Íslandi. Búsetuskilyrðin eru: Að hafa búið í landinu í 18 mánuði áður en skráning byrjar, að þetta sé aðal búsetu land viðkomandi þar sem manneskjan eyðir mestum tíma árs, þar sem viðkomandi er með atvinnu, borgar skatta og svo framvegis.
Skilgreining á flokkum og keppnisfyrirkomulag:
1. Opinn meistaraflokkur (MPO)
2. Meistaraflokkur kvenna (FPO)
3. Stórmeistaraflokkur 40 ára og eldri (MP40)
4. Stórmeistaraflokkur kvenna 40 ára og eldri (FP40)
5. Stórmeistaraflokkur 50 ára og eldri (MP50)
6. Stórmeistaraflokkur kvenna 50 ára og eldri (FP50)
7. Ungmennaflokkur 18 ára og yngri (MJ18)
8. Ungmennaflokkur kvenna 18 ára og yngri (FJ18)
Hverjir fá þátttökurétt á Íslandsmótinu 2025?
Skráning fer fram í þrepum og fá þeir sem eru með hærri PDGA stig forgang í mótið. Við viljum biðja þá sem eru óreyndir eða reynslulitlir að velja önnur mót og keppnir þar sem þetta mót er ætlað þeim sem eru reynslumiklir, þekkja vel reglur PDGA og eru með góða hæfni í frisbígolfi. Hámark keppenda verður auglýst í þrepi tvö í skráningarferli á mótið.
Birt með fyrirvara um breytingar.